
Um bókina
Árið 1987 fundust tvö systkini myrt á hrottafenginn hátt í sumarbústað á Sjálandi. Grunur beindist að hópi ungmenna úr efnuðum fjölskyldum en sannanir skorti og enginn var sakfelldur. Níu árum seinna játaði þó einn pilturinn á sig morðin og málið virtist leyst. Dag nokkurn árið 2007 liggja gömlu málsskjölin á borði Carls Mørck, forstöðumanns Deildar Q hjá dönsku lögreglunni. Hann áttar sig fljótlega á að þar er ekki allt með felldu og hefur rannsókn ásamt Assadi aðstoðarmanni sínum. Málið teygir sig frá aumri útigangskonu í miðborg Kaupmannahafnar til þriggja af auðugustu og valdamestu mönnum landsins.
Og auðmennirnir eru líka á hælum konunnar því að hún býr yfir vitneskju sem getur komið þeim á kaldan klaka. Veiðarnar eru hafnar – hver hremmir bráðina? Veiðimennirnir er önnur bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni. Jussi Adler-Olsen er um þessar mundir óumdeildur konungur danskra glæpasagnahöfunda og hefur safnað að sér öllum helstu verðlaunum á því sviði.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









