Heim › ...
Natríumklóríð eftir Jussi Adler-Olsen - hljóðbók

Natríumklóríð

Höfundur: Jussi Adler-Olsen

Flytjandi: Davíð Guðbrandsson

Þýðandi: Jón St

14 klst 41 mín
Vaka-Helgafell
Bók 9 af 10 í Deild Q

Um bókina

Sjálfsvíg sextugrar konu verður til þess að gamalt, óupplýst mál rifjast upp fyrir yfirmanni morðdeildar lögreglunnar – gríðaröflug sprenging á bílaverkstæði sem drap fimm bílvirkja og barn viðskiptavinar – og hann felur Deild Q að kanna það að nýju. Torkennileg salthrúga á vettvangi tengir atvikið fleiri dauðsföllum sem sum hver vöktu mikla athygli en voru flokkuð sem sjálfsvíg eða slys. Brátt verður Carl Mørck og félögum hans, Rose, Assad og Gordon, ljóst að fleiri líf geti verið í hættu …

Natríumklóríð er níunda bókin um Deild Q en Jussi Adler-Olsen nýtur mikilla vinsælda víða um heim fyrir sögur sínar. Áformað er að bækurnar í flokknum verði tíu alls og þegar hafa verið gerðar kvikmyndir eftir þeim fyrstu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán