Heim › ...
Konan í búrinu eftir Jussi Adler-Olsen - hljóðbók

Konan í búrinu

13 klst 40 mín
Vaka-Helgafell
Bók 1 af 10 í Deild Q

Um bókina

Ung dönsk þingkona hverfur sporlaust af ferju á leið til Þýskalands. Frami hennar hefur verið hraður enda er hún bæði greind og metnaðargjörn. Fjölmiðlar gera sér mikinn mat úr efninu: Framdi hún sjálfsmorð? Var hún myrt? Var henni rænt? Lenti hún í slysi? Vildi hún láta sig hverfa? Lögreglan skipuleggur víðtæka leit – en án árangurs.

Það er eins og konan hafi gufað upp af yfirborði jarðar. Það er ekki fyrr en einþykki og sérsinna rannsóknarlögreglumaðurinn Carl Mørk er settur yfir Deild Q,nýstofnaða sérdeild innan dönsku lögreglunnar, sem skriður kemst á málið. Þá er liðið á elleftu stundu. Konan í búrinu er fyrsta bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni. Jussi Adler-Olsen er óumdeildur konungur danskra glæpasagnahöfunda og hefur safnað að sér öllum helstu verðlaunum á því sviði.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán