
Um bókina
Í meira en áratug hefur hinn leyndardómsfulli Assad verið lykilmaður í Deild Q og fátt getað komið honum úr jafnvægi. En fréttamynd af látinni flóttakonu á strönd Miðjarðarhafsins vekur upp slíka fortíðardjöfla að Assad rambar skyndilega á barmi taugaáfalls og þá reynist samstarfskonan Rose honum haukur í horni.
Í kjölfarið hefst þrettán daga taugatrekkjandi niðurtalning að hryllilegum hamförum í hjarta Evrópu þar sem Ghaalib, miskunnarlausi böðullinn frá Írak, heldur um stjórntaumana. Á sama tíma þarf Deild Q að kljást við truflaðan, ungan mann sem undirbýr fjöldamorð. Með ótal mannslíf í húfi og sálarheill Assads að veði kasta Carl Mørck og félagar sér beint út í hringiðu skelfilegra atburða. Fórnarlamb 2117 er áttunda bókin um Deild Q en Jussi Adler-Olsen nýtur mikilla vinsælda víða um heim fyrir sögur sínar.
Áformað er að bækurnar í flokknum verði tíu alls og þegar hafa verið gerðar kvikmyndir eftir þeim fyrstu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









