
Um bókina
Yfirstjórn dönsku lögreglunnar vill leggja Deild Q niður, finnst hún hafa náð litlum árangri við að leysa gömul sakamál. Carl Mørck og félagar berjast gegn þeirri ákvörðun og reyna um leið að komast til botns í nýjum málum sem eiga rætur í fortíðinni. Roskin kona finnst myrt í Kaupmannahöfn og glæpurinn minnir á gamalt óupplýst morðmál. Ökuníðingur eltir ungar konur og ekur þær niður. Hvaða leyndu þræðir liggja á milli þessara mála – og hvernig tengjast þau nokkrum ungum, sjálfhverfum konum sem lifa á bótum og leita stöðugt nýrra leiða til að ná meiri peningum út úr kerfinu?
Afætur er sjöunda bókin um Deild Q en Jussi Adler-Olsen nýtur mikilla vinsælda víða um heim fyrir sögur sínar. Áformað er að bækurnar í flokknum verði tíu alls og þegar hafa verið gerðar kvikmyndir eftir þeim fyrstu. Jón St. Kristjánsson þýddi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









