Heim › ...
Skýrsla 64 eftir Jussi Adler-Olsen - hljóðbók

Skýrsla 64

Höfundur: Jussi Adler-Olsen

Flytjandi: Davíð Guðbrandsson

Þýðandi: Jón St

17 klst 35 mín
Vaka-Helgafell
Bók 4 af 10 í Deild Q

Um bókina

Árið 1987 hurfu nokkrar manneskjur í Kaupmannahöfn um svipað leyti án þess að vitað væri til að þær tengdust á nokkurn hátt. Rúmum tuttugu árum seinna vekja þessi mannshvörf athygli Carls Mørk og félaga hans, Assads og Rose, hjá Deild Q í dönsku lögreglunni. Smám saman rekja þau óljósa slóð, annars vegar til þekkts læknis og forystumanns í nýjum stjórnmálaflokki og hins vegar til Sprogeyjar þar sem lengi var hæli fyrir afvegaleiddar stúlkur. Sá staður reyndist mörgum vistmönnum helvíti á jörð. Og til eru þeir sem vilja frekar drepa vitnin en láta ýmislegt sem þar gerðist komast upp.

Skýrsla 64 er fjórða bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni. Jussi Adler-Olsen er óumdeildur konungur danskra glæpasagnahöfunda og hefur safnað að sér öllum helstu verðlaunum á því sviði.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán