Heim › ...
Flöskuskeyti frá P eftir Jussi Adler-Olsen - hljóðbók

Flöskuskeyti frá P

Höfundur: Jussi Adler-Olsen

Flytjandi: Davíð Guðbrandsson

Þýðandi: Jón St

18 klst 33 mín
Vaka-Helgafell
Bók 3 af 10 í Deild Q

Um bókina

Á lögreglustöðinni í Wick, nyrst í Skotlandi, hafði óralengi staðið rispuð flaska með bréfi í. Enginn gaf henni gaum eða velti fyrir sér hvað orðið þýddi sem mátti lesa gegnum glerið: HJÁLP. Þegar Carl Mørck í Deild Q hjá dönsku lögreglunni fær flöskuskeytið í hendur telur hann að um barnabrek sé að ræða en því betur sem Assad aðstoðarmaður hans skoðar velkt skeytið, því betur átta þeir sig á skilaboðum þess, að tveimur drengjum hafi verið rænt á tíunda áratugnum.

En hvaða drengir voru það og af hverju var hvarf þeirra aldrei tilkynnt? Smám saman flækjast Carl og Assad í net gáfaðs og tilfinningalauss mannræningja – sem reynist enn vera að. Flöskuskeyti frá P er af mörgum talin magnaðasta saga Jussi Adler-Olsen og hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010. Er hún jafnframt þriðja bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni. Jussi Adler-Olsen er um þessar mundir óumdeildur konungur danskra glæpasagnahöfunda og hefur safnað að sér öllum helstu verðlaunum á því sviði.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán