Heim › ...

Um bókina
Kona finnst látin í íbúð sinni í Osló eftir að hafa átt stefnumót á bar. Líkið er blóðlaust og á hálsinum eru bitför. Fleiri dýrsleg morð fylgja í kjölfarið … Eru vampírur farnar að nota Tinder? Eða er hvasstenntur raðmorðingi kominn á kreik? Lögreglan er ráðþrota og aðeins einn maður getur komið til hjálpar: Harry Hole, sem er sestur í helgan stein og kennir við Lögregluháskólann. Hann er tregur til en þegar draugar fortíðarinnar skjóta upp kollinum og ástvinum hans er ógnað grípur hann til sinna ráða og spennan verður óbærileg.
Þorsti er ellefta bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app











