Heim › ...
Djöflastjarnan eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Djöflastjarnan

Höfundur: Jo Nesbø

Flytjandi: Orri Huginn Ágústsson

Þýðandi: Bjarni Gunnarsson

17 klst 32 mín
Forlagið
Bók 5 af 12 í Harry Hole

Um bókina

Á þrúgandi heitum sumardegi í Osló finnst ung kona myrt í íbúð sinni. Einn fingur hennar hefur verið skorinn af og undir öðru augnloki hennar finnst agnarsmár rauður demantur, skorinn í fimm arma stjörnu. Harry Hole er falin rannsókn málsins ásamt Tom Waaler – vinnufélaga sem hann hefur sterklega grunaðan um vopnasmygl og morð. Fimm dögum síðar er tilkynnt um hvarf konu.

Þegar afskorinn fingur hennar finnst, og á honum hringur með stjörnulaga demanti, lítur út fyrir að Oslóarlögreglan eigi í fyrsta sinn í höggi við raðmorðingja. Á sama tíma er Harry staðráðinn í að sýna fram á sekt Waalers.

Í ákafri leit sinni að lausn þessara tveggja mála stendur hann frammi fyrir erfiðum ákvörðunum, meðal annars um framtíð sína hjá lögreglunni. Djöflastjarnan er fimmta bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán