
Um bókina
Fyrsti snjórinn er kominn. Jonas vaknar einn í húsinu um miðja nótt og finnur ekki móður sína. Hann stígur í bleytu á gólfinu og sér að einhver hefur komið inn á skónum. Fyrir utan stofugluggann stendur einmanaleg vera: snjókarl baðaður fölu tunglsljósi.
En hvers vegna horfir hann á húsið þeirra? Og af hverju er hann með trefilinn hennar mömmu um hálsinn? Harry Hole hefur borist dularfullt bréf í pósti, undirritað „Snjókarlinn“. Hann grunar að hvarf móður Jonasar tengist þessu bréfi á einhvern hátt og setur saman lítinn rannsóknarhóp.
Við athugun á gömlum lögregluskýrslum kemur í ljós að furðumargar ungar mæður, ýmist giftar eða í sambúð, hafa horfið á undanförnum árum. Allar um þetta sama leyti; snemma vetrar. Þegar fyrsti snjórinn fellur. Snjókarlinn er sjöunda bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app











