Heim › ...
Afturgangan eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Afturgangan

Höfundur: Jo Nesbø

Flytjandi: Orri Huginn Ágústsson

Þýðandi: Bjarni Gunnarsson

19 klst 33 mín
JPV
Bók 9 af 12 í Harry Hole

Um bókina

Þegar Harry Hole flytur til Hong Kong telur hann sig lausan við byrðar fortíðarinnar fyrir fullt og allt. En þá fær hann fregnir af því að Oleg, sonur fyrrverandi unnustu hans, hafi verið handtekinn, sakaður um morð. Harry neitar að trúa að Oleg sé sekur og snýr aftur heim til Noregs. Hann dregst þegar inn í miskunnarlausa undirheima Oslóarborgar, þar sem nýtt og háskalegt eiturlyf er komið í umferð. Lögreglan vill ekki hleypa Harry nálægt rannsókn málsins en þegar honum tekst að lauma sér inn í fangelsið og ná tali af Oleg sannfærist hann um að morðið tengist fíkniefnaheiminum og nýja efninu.

Hann neyðist til að takast á við eigin fortíð og horfast í augu við sannleikann um Oleg og sjálfan sig. Afturgangan er níunda bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán