Heim › ...
Frelsarinn eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Frelsarinn

18 klst 59 mín
JPV
Bók 6 af 12 í Harry Hole

Um bókina

Á Egertorgi í miðborg Oslóar er meðlimur Hjálpræðishersins skotinn til bana af manni úr áheyrendahópnum. Blaðaljósmyndari hefur náð myndum af grunsamlegum manni en Beate Lønn, sérfræðingur lögreglunnar í að þekkja andlit, ruglast í ríminu því ásýnd mannsins virðist breytast frá einni mynd til annarrar. Rannsóknarlögreglumaðurinn Harry Hole leitar þessa andlitslausa morðingja og meðan Oslóarbúar óska hver öðrum gleðilegra jóla verða stokkfrosin strætin að vígvelli þar sem barist er upp á líf og dauða.

Einkum dauða. Frelsarinn er sjötta bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán