Heim › ...
Brynhjarta eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Brynhjarta

Höfundur: Jo Nesbø

Flytjandi: Orri Huginn Ágústsson

Þýðandi: Bjarni Gunnarsson

25 klst 10 mín
JPV
Bók 8 af 12 í Harry Hole

Um bókina

Brynhjarta er það ástand þegar manneskja er grafin undir svo miklu fargi að álagið á brjóstkassann er slíkt að hún nær ekki andanum. Með brynhjarta er hægt að lifa í fjórar mínútur. Með stuttu millibili finnast lík tveggja kvenna í Osló. Af dularfullum áverkum í munni þeirra dregur lögreglan þá ályktun að þær hafi verið myrtar af sama ódæðismanninum. Kaja Solness er send til Hong Kong til að hafa uppi á eina norska lögreglumanninum sem er sérfróður um raðmorðingja. Hann hefur falið sig þar í mannhafinu og vill ekki láta finna sig.

Vill ekki horfast í augu við drauga fortíðarinnar. Hann heitir Harry Hole. Brynhjarta er áttunda bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán