Heim › ...
Leðurblakan eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Leðurblakan

14 klst 12 mín
JPV
Bók 1 af 12 í Harry Hole

Um bókina

Lík norskrar konu finnst undir sjávarhömrum í Ástralíu og allt bendir til að hún hafi verið myrt. Norsk yfirvöld senda ungan lögreglumann þvert yfir hnöttinn til að vera lögreglunni í Sydney innan handar við rannsókn málsins. Sá heitir Harry Hole. Hann velst ekki til fararinnar vegna þess að hann sé svo hátt skrifaður á heimaslóðum, heldur glímir hann þvert á móti við áfengisvanda og hefur nýlega orðið valdur að hræðilegu slysi í starfi. Hann á að láta sig hverfa um stund, fylgjast með, gera eins og honum er sagt.

En Harry er síður en svo eiginlegt að halda sig á hliðarlínunni og fyrr en varir á morðrannsóknin hug hans allan. Sem og Birgitta, vinkona hinnar látnu. Leðurblakan er fyrsta bókin um Harry Hole, breyska lögreglumanninn sem glæpasagnaaðdáendur fá ekki nóg af.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán