Heim › ...
Dauðar sálir syngja ekki eftir Jussi Adler-Olsen, Line Holm og Stine Bolther - hljóðbók

Dauðar sálir syngja ekki

17 klst 13 mín
Vaka-Helgafell
Bók 11 af 11 í Deild Q

Um bókina

Skotheldur spennutryllir um barnslegt sakleysi og brostna drauma, ódæði, svik og ábyrgð – hröð og grípandi atburðarás, sannfærandi persónur og leiftrandi danskur húmor.

Carl Mørck hefur sagt skilið við lögregluna og einbeitir sér að glæpasagnaskrifum en gamla starfið eltir hann uppi: Hann fær í hendur hljóðupptöku sem varpar nýju ljósi á óhugnanlegt mál sem talið var leyst fyrir löngu og lætur sína fyrri félaga í Deild Q vita.

Í deildinni eru nú aðeins eftir Assad og Rose – og nýja konan, Helena, sem er einkennilega spör á upplýsingar um fortíð sína. En fleiri eiga sér leyndarmál og sum þeirra eitra út frá sér; gamlar misgerðir gleymast ekki heldur verða uppspretta beiskju og grimmilegs hefndarþorsta.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán