
Um bókina
Í skógi einum í Sviss er sérkennilegur klettur. Sagan segir að ef hann er heimsóttur á tíma veiðimánans sjái maður framtíðarmaka sinn. Cordelia Grant er ensk stúlka í heimavistarskóla í Sviss sem ákveður að heimsækja klettinn með vinkonum sínum til að sjá hvort sagan sé sönn. Og þær verða ekki fyrir vonbrigðum. Í skóginum hitta þær dularfullan en myndarlegan mann sem sýnir Cordeliu alveg sérstaka athygli. Cordelia snýr aftur til Englands, en getur ekki hætt að hugsa um þennan ókunna, heillandi mann. Þegar hann birtist við dularfullar aðstæður á fjölskylduheimili hennar fer hún að halda að þjóðsagan um klettinn sé kannski sönn…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
Gotneskar ástarsögur

Örlagaperlurnar

Tími veiðimánans

Villti baróninn

Töfrar hvíta kastalans

Bölvun konunganna

Sjöunda jómfrúin

Leynda konan

Örlög á Matelandsetrinu

Kastalagreifinn

Þriðja brúðurin

Menfreya kastalinn

Greifinn og enska frænkan

Systurnar frá Greystone

Hús hinna þúsund lampa

Drottnari eyjunnar

Kviksandur

Nótt sjöunda mánans

Stolt páfuglsins

Frúin á Mellyn

Greifinn á Kirkjubæ
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app