
Um bókina
Catherine er nýflutt heim til Yorkshire eftir nám í Dijon þegar hún hittir ungan mann að nafni Gabriel Rockwell. Hann er sonur baróns og býr á herragarði í útjaðri Yorkshire. Fundurinn verður ást við fyrstu sýn og Catherine og Gabriel gifta sig. Þegar heim á herragarðinn er komið áttar Catherine sig á því að ekki eru allir jafn ástfangnir af henni og Gabriel og ekki er allt eins og það á að vera. Yfir býlinu ríkir kuldalegt andrúmsloft og það virðist búa yfir hræðilegum leyndarmálum.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
Gotneskar ástarsögur

Örlagaperlurnar

Tími veiðimánans

Villti baróninn

Töfrar hvíta kastalans

Bölvun konunganna

Sjöunda jómfrúin

Leynda konan

Örlög á Matelandsetrinu

Kastalagreifinn

Þriðja brúðurin

Menfreya kastalinn

Greifinn og enska frænkan

Systurnar frá Greystone

Hús hinna þúsund lampa

Drottnari eyjunnar

Kviksandur

Nótt sjöunda mánans

Stolt páfuglsins

Frúin á Mellyn

Greifinn á Kirkjubæ
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app