
Um bókina
Frá því Suwellen sá Matelandsetrið fyrst vissi hún að hún myndi einhvern daginn búa þar. En hvernig getur óskilgetið barn nokkurn tímann uppfyllt þess háttar draum? Leyndardómsfullar aðstæður senda Anabel og Joel Mateland landflótta þvert yfir hnöttinn. Á eldfjallaeyju við strendur Ástralíu elst Suwellen dóttir þeirra upp og minningar um England virðast dofna. En þegar Susannah, hálfsystir Suwellen, kemur óvænt í heimsókn verða örlagaríkar breytingar á lífi þeirra allra. Susannah er eins og eldfjallið sem ríkir yfir eyjunni, hún fær gamla afbrýðissemi og ný átök til að gjósa upp. Þegar harmleikur verður kastast Suwellen inn í hættulegan blekkingavef. Heima á Englandi verður hún að bera grímu hinnar töfrandi konu – veikt dulargervi, sem kemur henni í lífshættu…
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
Gotneskar ástarsögur

Örlagaperlurnar

Tími veiðimánans

Villti baróninn

Töfrar hvíta kastalans

Bölvun konunganna

Sjöunda jómfrúin

Leynda konan

Örlög á Matelandsetrinu

Kastalagreifinn

Þriðja brúðurin

Menfreya kastalinn

Greifinn og enska frænkan

Systurnar frá Greystone

Hús hinna þúsund lampa

Drottnari eyjunnar

Kviksandur

Nótt sjöunda mánans

Stolt páfuglsins

Frúin á Mellyn

Greifinn á Kirkjubæ
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app