
Um bókina
Hin sautján ára Pippa uppgötvar nokkuð skelfilegt. Systir hennar, Francine, sem lést nokkrum árum áður, var í raun myrt. Hún fannst á veiðisetri í furstadæminu Bruxenstein ásamt baróninum manni sínum, en barn þeirra var hvergi að finna. Pippa ferðast til Bruxenstein til að komast að því hvernig – og hvers vegna – systir hennar var myrt og hvað varð um barn Francine. Tilraun hennar til að komast að sannleikanum um dauða systur sinnar færir hana mitt í valdabaráttu um furstadæmið og hún mætir pólitískum öflum sem veigra sér ekki við að myrða fyrir völd. Mitt í þessu hrífandi en hræðilega landi hittir Pippa þó einnig ástina og yfirþyrmandi ástríðu.
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
Gotneskar ástarsögur

Örlagaperlurnar

Tími veiðimánans

Villti baróninn

Töfrar hvíta kastalans

Bölvun konunganna

Sjöunda jómfrúin

Leynda konan

Örlög á Matelandsetrinu

Kastalagreifinn

Þriðja brúðurin

Menfreya kastalinn

Greifinn og enska frænkan

Systurnar frá Greystone

Hús hinna þúsund lampa

Drottnari eyjunnar

Kviksandur

Nótt sjöunda mánans

Stolt páfuglsins

Frúin á Mellyn

Greifinn á Kirkjubæ
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app