
Um bókina
Sarah Ashington er dóttir frægrar leikkonu og ensks tebónda í Ceylon. Þegar móðir hennar deyr er Sarah upp á föðurfjölskylduna komin og flyst að lokum til Ceylon, þar sem hún kynnist öðrum enskum tebónda, Clinton Shaw. Upp hefst stormasamt ástarsamband og þegar faðir Söruh deyr fer hana að gruna að hennar eigið líf sé einnig í hættu. En hver er eiginlega Clinton Shaw og hver eru raunveruleg áform hans? Og hvað er leyndarmálið á bak við fjölskylduperlurnar, sem aðeins kvenkyns afkomendur ættarinnar mega eiga?
Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.
Gotneskar ástarsögur

Örlagaperlurnar

Tími veiðimánans

Villti baróninn

Töfrar hvíta kastalans

Bölvun konunganna

Sjöunda jómfrúin

Leynda konan

Örlög á Matelandsetrinu

Kastalagreifinn

Þriðja brúðurin

Menfreya kastalinn

Greifinn og enska frænkan

Systurnar frá Greystone

Hús hinna þúsund lampa

Drottnari eyjunnar

Kviksandur

Nótt sjöunda mánans

Stolt páfuglsins

Frúin á Mellyn

Greifinn á Kirkjubæ
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app