
Um bókina
Æskuheimili Ingu Svartdals er í hættu. Heiðveig, ekkjan frá nágrannabænum Gullholti, hefur áform um að taka yfir Svartdal og er reiðubúin að grípa til örþrifaráða. Henni stendur á sama hvort nafn Kristjáns Svartdals eða hennar eigið verði dregið gegnum svaðið og heldur því fram að Kristján sé faðir Þorsteins, elsta sonar hennar, sem þar með fengi erfðarétt á ættaróðalinu. Um leið og Inga reynir að finna leið til að sanna að Heiðveig sé að ljúga heldur dramatíkin áfram á Gaupási: vinnukonan Marlena verður þunguð, trúlofun stjúpdótturinnar Sigríðar og þorsteins er í hættu vegna væntanlegra réttarhalda og mitt í þessu öllu saman verður Inga ástfangin – aftur.
Auk þess gengur morðinginn Steinar laus, og ef til vill er hann nær en nokkru sinni fyrr …
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









