Um bókina

Vandamálin virðast hrannast upp kringum Ingu Svartdal. Eftir að hafa verið þvinguð til að horfa á sinn ástkæra Martein giftast Guðrúnu, stjúpdóttur hennar, líður Ingu eins og hjarta hennar verði aldrei heilt aftur.

Þegar hún er skyndilega kvödd til að vera við fæðingu Sörínu mágkonu sinnar, fer allt á versta veg … Heima á Gaupási er engin lognmolla heldur – móðuramma Sigríðar og Guðrúnar stígur óvænt fram með upplýsingar um fortíð móður þeirra. Morðingi leikur lausum hala í héraðinu og ekki nóg með það, eitt af útihúsunum brennur sem fær Ingu til að brjóta heilann um það hvort hatur Guðrúnar á henni hafi orðið til þess að stjúpdóttirin hafi algjörlega farið yfir strikið.

Í kjölfarið kemur í ljós að hin nýgifta Guðrún er með barni. En hver er eiginlega faðirinn …?

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán