Heim › ...
Hyldýpið eftir Torill Thorup - hljóðbók

Hyldýpið

5 klst 55 mín
Lind & Co
Bók 9 af 10 í Inga Svartdal

Um bókina

Sér til hryllings verður Inga vitni að því þegar stjúpdóttirin, Guðrún, fellur frá heyloftinu og deyr. Þegar heimilisfólkið drífur að, neyðist Inga til að setja á svið ótrúlegt sjónarspil – engan má gruna að hún hefði í raun ýtt stiganum með Guðrúnu frá brúninni ...

Þrátt fyrir þá staðreynd að Inga hefði einungis brugðist við í sjálfsvörn, ber hún nú enn eitt leyndarmálið á herðum sér. Það veldur stirðleika í sambandi þeirra Sigríðar, yngri systur Guðrúnar, sem ætlar innan skamms að giftast Þorsteini, unnusta sínum.

Sláttumanninn Erling, grunar að Inga hafi eitthvað óhreint í pokahorninu vegna dauða Guðrúnar og lætur hana ekki í friði. Í allri ringulreiðinni uppgötvar Inga að hún er aftur með barni – og Björn er faðirinn.

Bækurnar tólf um Ingu Svartdal, fylgja henni gegnum spennuþrungið lífið, sem einkennist af nauðungarhjónabandi, gömlum sjúkum fjölskyldudeilum og ljótum leyndarmálum.

En þrátt fyrir sorgir og niðurlægingu, fær Inga einnig að upplifa stormasamar, forboðnar ástir og þrá.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán