Heim › ...

Um bókina
Í útreiðartúr kemst Inga að raun um að sláttumaðurinn Erlingur eltir hana til að halda áfram fjárkúgunum vegna dauða Guðrúnar. En Svartalín, hryssa Ingu, hefur ekki gleymt því að Erlingur misþyrmdi henni og tryllt merin sparkar í Erling, svo hann lætur lífið fyrir augunum á Ingu! Hún hefur enn og aftur orðið annarri manneskju að bana – og nú verður hún að fela líkið, hvað sem það kostar … Þótt hún haldi í fyrstu að hún hafi komist upp með glæpinn, leynast hætturnar handan við hornið. Inga og Marteinn, sem fundu hvort annað eftir dauða beggja maka sinna, eiga á hættu að verða fyrir hefndaraðgerðum Heiðveigar og Ingibjargar.
Sjálf vill Ingibjörg giftast Marteini og hana grunar að Inga hafi átt þátt í hvarfi Erlings.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app









