
Um bókina
Einn dimman morgun hrekkur múmínsnáðinn óvænt upp úr vetrardvalanum. Allir í múmíndal eru í fastasvefni og veröldin er framandi: hvít og ísköld. Yndisleg saga af snáða sem finnst verst af öllu að vera vakandi innan um þá sem steinsofa, en herðir upp hugann; stingur sér á bólakaf í snjóskafl og eignast óvænt nýja vini.
Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin sjötta sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app







