Heim › ...

Um bókina
Eyjan hans múmínpabba fjallar um þegar múmínpabba finnst lítill tilgangur með lífinu, meðal annars því hann er ekki neinum til gagns og enginn reiðir sig á hann lengur. Til að hrista upp í tilverunni flytur hann með fjölskylduna á eyðieyju langt úti á hafi. Þar læra þau öll að ganga í nýjum takti.
Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin áttunda sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.290 kr
Sækja app







