Heim › ...
Örlaganóttin eftir Tove Jansson - hljóðbók

Örlaganóttin

Höfundur: Tove Jansson

Flytjandi: Friðrik Erlingsson

Þýðandi: Steinunn Briem

3 klst 31 mín
Mál og menning
Bók 5 af 8 í Múmíndalur

Um bókina

Í nágrenni við múmínhúsið er eldfjall farið að gjósa og múmíndalur er í flóðahættu. Sem betur fer kemst fjölskyldan um borð í fljótandi hús sem rekur hjá. Það reynist vera gamalt leikhús – og leikhúsrottan Emma er ekki alls kostar vingjarnleg.

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin fimmta sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr