Heim › ...
Ósýnilega barnið og aðrar sögur eftir Tove Jansson - hljóðbók

Ósýnilega barnið og aðrar sögur

3 klst 54 mín
Mál og menning
Bók 7 af 8 í Múmíndalur

Um bókina

Smásagnasafnið Ósýnilega barnið og aðrar sögur geymir níu smásögur úr múmíndal. Góðkunningjar múmínfjölskyldunnar eru oftast í aðalhlutverki; Snúður, hin ósýnilega Ninna, Fillífjonkan, síðasti drekinn í heiminum og hinir rafmögnuðu hattífattar. Sögur sem kenna okkur sitthvað um heiminn.

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin sjöunda sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr