
Utan frá sjó, þriðja bindi
Höfundur: Guðrún frá Lundi
Flytjandi: Þórunn Hjartardóttir
Um bókina
Vonir Dagbjartar um nýjan og betri eiginmann rætast ekki að sinni. Hún gefur þó ekki upp vonina og heldur ótrauð áfram að svipast um eftir eiginmannsefni. Ef hægt er að segja, að eitthvað einkenni sögur Guðrúnar frá Lundi fremur öðru, þá eru það samtölin. Samræðulistin er hennar aðall. Þar er hún mikill snillingur. Oft verða samtöl svo lifandi og sérkennandi fyrir þátttakendur, að manni finnst næstum því sem maður sé viðstaddur og horfi á fólkið.Eins og svo oft áður, tekst Guðrúnu frá Lundi að fanga hug og hjörtu lesenda á einstakan hátt, með því að gæða persónur sínar lífi svo lesandinn hverfur meira en heila öld aftur í tímann.
Hún sendi frá sér sextán skáldsögur alls, sumar í mörgum bindum, og var áratugum saman einn alvinsælasti höfundur landsins.Bókin kom út árið 1972.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


