
Utan frá sjó, annað bindi
Höfundur: Guðrún frá Lundi
Flytjandi: Þórunn Hjartardóttir
Um bókina
Dagbjört er laus við eiginmanninn og flutt með dæturnar heim til foreldranna. Heldur er kalt á milli systranna og ekki vill Þórný láta eftir Hauk litla. Vonir Dagbjartar um betra líf glæðast nokkuð þegar myndarlegur kaupamaður er ráðinn að Múlavík. Eins og svo oft áður, tekst Guðrúnu frá Lundi að fanga hug og hjörtu lesenda á einstakan hátt, með því að gæða persónur sínar lífi svo lesandinn hverfur meira en heila öld aftur í tímann. Hún sendi frá sér sextán skáldsögur alls, sumar í mörgum bindum, og var áratugum saman einn alvinsælasti höfundur landsins.Ef hægt er að segja, að eitthvað einkenni sögur Guðrúnar frá Lundi fremur öðru, þá eru það samtölin.
Samræðulistin er hennar aðall. Þar er hún mikill snillingur. Oft verða samtöl svo lifandi og sérkennandi fyrir þátttakendur, að manni finnst næstum því sem maður sé viðstaddur og horfi á fólkið.Bókin kom upphaflega út árið 1971.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


