Heim › ...
Utan frá sjó, fyrsta bindi eftir Guðrún frá Lundi - hljóðbók

Utan frá sjó, fyrsta bindi

7 klst 15 mín
Hljóðbók.is
Bók 1 af 4 í Utan frá sjó

Um bókina

Eftirlætisbarnið Dagbjört er bjarthærð og brosmild, ólíkt Þórnýju systur hennar sem er dökk yfirlitum og fáskiptin. En svo fer að Dagbjört verður fyrir mótlæti í sínu hjónabandi og verður að sætta sig við að Þórný giftist æskuunnustanum Ármanni. Ef hægt er að segja, að eitthvað einkenni sögur Guðrúnar frá Lundi fremur öðru, þá eru það samtölin. Samræðulistin er hennar aðall. Þar er hún mikill snillingur. Oft verða samtöl svo lifandi og sérkennandi fyrir þátttakendur, að manni finnst næstum því sem maður sé viðstaddur og horfi á fólkið.Dásamlegar bókmenntir, verð ég að segja!!

Bestar eru þó lýsingar á fólki, ýtarlegar mjög, sem kemur svo ekki frekar við sögu!! Þetta er eins og í Íslendingasögunum. (ónefndur bloggari) … Bókin kom upphaflega út árið 1970.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán