Heim › ...
Utan frá sjó, fjórða bindi eftir Guðrún frá Lundi - hljóðbók

Utan frá sjó, fjórða bindi

11 klst 26 mín
Hljóðbók.is
Bók 4 af 3 í Utan frá sjó

Um bókina

Draumar Dagbjartar um að komast að heiman rætast þegar hún gerist ráðskona hjá Sigurpáli bílstjóra. Þær mæðgur binda miklar vonir við lífið í kaupstaðnum en verða fljótlega fyrir vonbrigðum. Hugurinn er allur í föðurhúsum. Lýsing á mannlífi í sveit og á mölinni á síðustu öld. Fólk er óðum að flytjast í þéttbýli, en sumir hverfa aftur til sveitalífsins. Eins og svo oft áður, tekst Guðrúnu frá Lundi að fanga hug og hjörtu lesenda á einstakan hátt, með því að gæða persónur sínar lífi svo lesandinn hverfur meira en heila öld aftur í tímann.

Hún sendi frá sér sextán skáldsögur alls, sumar í mörgum bindum, og var áratugum saman einn alvinsælasti höfundur landsins. Bókin kom upphaflega út árið 1973.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán