Heim › ...

Um bókina

Það er sumar, steikjandi hiti og brakandi sól yfir Stokkhólmi. Á veitingastað við vatnsbakkann á Kungsholmen situr fólk og skálar og skemmtir sér. Skyndilega rís einhver á fætur og fleiri fylgja í kjölfarið. Ástæðan er sjón sem gleymist seint: Úti á Riddarfirðinum veltist uppblásinn flamingófugl á bárunum og nálgast veitingastaðinn hægt og rólega.

Þegar hann loks rekur að landi heyrist skelfingaróp og einhver kastar upp. Flamingóinn ber nefnilega hræðilegan farm. Rígbundinn við hann er nakinn maður. Höfuðlaus maður … Nick Johansson og Klara Pil hjá rannsóknarlögreglunni í Stokkhólmi taka að sér rannsóknina sem vindur hratt upp á sig og verður sífellt óhugnanlegri. Eins og það sé ekki nóg neyðast þau einnig til að horfa upp á kæra vinkonu giftast samstarfsfélaga, manni sem þau af ýmsum ástæðum hafa innilega óbeit á.

Á meðan hitinn liggur eins og mara yfir borginni vinna Nick og Klara hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að fleiri en höfuðlausi maðurinn hljóti jafn ofbeldisfull og hryllileg örlög.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán