Heim › ...

Um bókina

Það er maímánuður og sólin skín yfir Stokkhólm. Nýbúið er að opna Gröna Lund og alls staðar úir og grúir af fólki. Við eitt af klassísku tækjunum í skemmtigarðinum verður skyndilega handagangur í öskjunni.

Þegar lestin kemur út úr Ástargöngunum kemur í ljós að þrír af farþegunum eru látnir. Nick Johansson yfirlögregluþjónn og Klara Pil samstarfskona hans, hefja viðamikla leit að morðingjanum. En þrátt fyrir hröð handtök eru þau alltaf skrefi á eftir, því morðinginn lætur sér ekki nægja fórnarlömbin þrjú í Ástargöngunum. Brátt er annað morð framið, á öðrum vinsælum stað í Stokkhólmi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán