
Um bókina
Það er komið haust og rannsóknarlögreglumennirnir Nick Johansson og Klara Pil, ásamt samstarfsfólkinu hjá Stokkhólmslögreglunni, flækjast í mál sem hefst með því að tilkynnt er um týndan unglingspilt. Skömmu síðar hverfur einnig unglingsstúlka. Lengi vel stendur rannsóknin í stað þar sem lögreglan á erfitt með að finna eitthvað sameiginlegt með ungmennunum tveimur en þegar hlutirnir fara loksins að smella saman tekur málið óþægilega og óvænta stefnu. Nick og Klara eru rétt byrjuð að jafna sig eftir sprengju sumarsins, þegar Torsten Lilja, yfirsaksóknarinn sem þau höfðu oft unnið með við hin ýmsu sakamál og giftist þar að auki nýlega góðri vinkonu þeirra, var afhjúpaður sem barnaníðingur.
Nú verður teymið að taka höndum saman til að komast að því hvað hefur orðið um unglingana. Hörð barátta hefst í kapphlaupi við tímann þegar þau loksins uppgötva hvern þau eiga í höggi við. LOTTA LUXENBURG hefur notið mikilla vinsælda á hljóðbókamarkaðnum með glæpasögunum Horfin, Sporlaust, Hefnd, Eltingaleikur og Fanginn.
Nick Johansson og Klara Pil
Bók 7 af 7
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app






