Heim › ...

Um bókina
Seint í nóvember gerist í múmíndal þegar múmínfjölskyldan býr á eyðieyju. Þá koma hemúll, fillífjonka, Snúður, kaskurinn Þófti og Skari gamli í múmíndal í leit að múmínfjölskyldunni en finna ýmislegt dýrmætt í hennar stað.
Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin níunda sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app







