
Um bókina
Hjúkrunarfræðingurinn Jenny Martin finnst látin í brunnum bíl. Henni virðist hafa verið troðið í skottið í flýti eftir að hafa verið kyrkt og barin til ólífis. Lögreglan grunar „Ásinn“ Nick Fenny um verknaðinn. Hann er nítján ára alræmdur vandræðagepill og bílaþjófur.
En móðir Nicks neitar að trúa því að sonur hennar sé morðingi og leitar til Kate um hjálp við að hreinsa mannorð hans. Aðstæður Kate leyfa ekki að hún hafni verkefnum svo hún tekur boðinu. Hún landar starfi fórnarlambsins á heilsugæslustöð til þess að átta sig á hver gæti hafa viljað hana feiga. Þá lætur annar starfsmaður lífið á voveiflegan hátt – vinnustaðurinn virðist lífshættulegur. Geta Kate og vinur hennar og leigusali, sérvitri útfararstjórinn Hubert, haft uppi á hinum raunverulega morðingja áður en það er um seinan?
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app




