Heim › ...
Banvænir félagar eftir Christine Green - hljóðbók

Banvænir félagar

8 klst 16 mín
Lind & Co
Bók 4 af 5 í Kate Kinsella

Um bókina

Frú Forrester er farin að eldast og hún hefur áhyggjur. Hún hefur ekkert heyrt frá Nigel, frænda sínum, í þrjá mánuði og ræður þess vegna Kate Kinsella, hjúkrunarfræðing og einkaspæjara, til að hjálpa sér að finna hann. Kate leggur upp í ferð að hótelinu Uplands Lodge á Wight-eyju þar sem Nigel starfar. Hún kemur að smáhýsi þar sem Nigel býr á snævi þakinni hótellóðinni. Hún vonast til að finna einhverjar vísbendingar og ákveður að brjótast inn. Þar finnur hún lík sem liggur fram á skrifborð, blóði drifið kúbein er á gólfinu við hlið fórnarlambsins – en það er ekki Nigel.Lögregluna grunar þegar að Kate sé gerandinn.

Til að hreinsa mannorð sitt verður Kate að komast til botns í málinu, svikamyllu sem teygir anga sína meira en áratug aftur í tímann – og finna Nigel.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán