
Banvæn sendiferð
Um bókina
Einkaspæjari sem er hjúkrunarfræðingur!
Kate Kinsella er á skrifstofunni sinni fyrir ofan Humberstones-útfararstofuna, að velta fyrir sér fyrsta morðmálinu sem hún hefur tekið að sér sem einkaspæjari.
Jacky Byfield, hjúkrunarfræðingur á niðurnídda Sankti Dymphna-sjúkrahúsinu, var stungin til bana á sjúkrahúslóðinni þegar hún fór í sendiferð á næturvakt.
Lögreglan er komin á blindgötu í málinu. Fjölskyldu Jackyar er mjög í mun að ná fram réttlæti og nú er komið að Kate að verða ágengt í málinu og finna morðingjann.
Kate ákveður að taka að sér vaktir á Sankti Dymphna-sjúkrahúsinu undir fölsku flaggi.
En á meðan Kate er þar deyja þrjár manneskjur til viðbótar á grunsamlegan hátt, þar á meðal sú sem hún grunaði einna helst.
Verður Kate fimmta fórnarlambið?
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app