
Um bókina
Lestarstjóri tilkynnir um óviðkomandi aðila á teinunum í norðurhluta Stokkhólms, sem veldur bæði gremju og töfum á allri umferð.Við komuna á hina yfirgefnu neðanjarðarlestarstöð við Kymlinge, blasir við öryggisvörðunum átakanleg sjón sem þeir munu aldrei gleyma. Maður með snöru um hálsinn og hendurnar bundnar fyrir aftan bak reynir að halda jafnvæginu á föllnum stól. Annar maður finnst látinn skammt frá, með augnlokin grimmilega límd opin og andlitinu beint að tölunni 7177 á veggnum fyrir framan sig.Rebeccu Kraft, rannsóknarlögregluþjóni á morðdeildinni í Stokkhólmi, er falin rannsókn málsins.
Með óbilandi þrautseigju fylgir hún þeim fáu vísbendingum sem í boði eru og hægt og bítandi skýrist myndin af morðingjanum. Hætturnar leynast alls staðar í leitinni að sannleiknum og með hverju skrefi koma ný leyndarmál í ljós.
Morðgátur Stokkhólms
Bók 2 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

