Heim › ...

Um bókina

Kona finnst látin í Ráðhúsi Stokkhólms, löðrandi í rauðri málningu. Henni hefur verið komið fyrir í hinum sögufræga sal, Ovalen, þar sem fjöldi ástfanginna para hafa játast hvort öðru. Rebecca Kraft í morðdeild Stokkhólmslögreglunnar fær rannsóknina á sitt borð. Því nær sem hún kemst lausninni þeim mun fleiri spurningar vakna — ekki bara um morðið, heldur einnig hennar eigið líf.

Þegar systur hennar, Tone, er skyndilega ógnað stendur Rebecca frammi fyrir sínu erfiðasta vali til þessa: að gera skyldu sína eða vernda fjölskylduna. Á sama tíma magnast spennan milli hennar og vinnufélagans Enzos.

Það neistar á milli þeirra en því verður að halda leyndu hvað sem það kostar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán