Um bókina

Brennt lík konu finnst í íbúð í yfirgefnu húsi í miðborg Stokkhólms. Lögreglustjórinn telur þetta enn eitt hefðbundna morðmálið og felur Rebeccu Kraft, nýráðnum rannsóknarlögregluþjóni á morðdeildinni, ábyrgðina á rannsókn málsins. Með réttartæknifræðinginn Karsten sér við hlið, hefst rannsóknin á vettvangi en brátt veitir Rebecca því eftirtekt að sjálft húsið geymir mörg leyndarmál. Hvers vegna eru leynigangar á milli veggjanna og hver er drengurinn sem aðeins Rebbecca sér?Því fleiri vísbendingar sem koma í ljós, því dýpra flækist hún í sögu hússins.

Þegar þau loks mæta skelfilegri sjón á háaloftinu, átta þau sig á að málið er mun alvarlegra en þau hefðu getað gert sér í hugarlund.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán