Heim › ...

Um bókina

Hverjum getur maður treyst?

Sumarið er á næsta leiti og Stokkhólmur fegurri en nokkru sinni fyrr. Snemma morguns finnst unglingsdrengur látinn í skóglendi í úthverfinu Bromma. Líkið er illa útleikið og drengurinn virðist hafa verið rændur. Spennan magnast í annars friðsælu hverfinu og grunur beinist að öðrum drengjum í nærliggjandi hverfi.

Emma Sköld og félagar hennar í lögreglunni standa frammi fyrir flókinni ráðgátu þar sem fordómar setja strik í reikninginn. Í kapphlaupi við tímann reyna þau að leysa málið áður en morðinginn lætur aftur til skarar skríða.

LYGARINN er sjálfstætt framhald af bókunum um Emmu Sköld. Líkt og í fyrri verkum tekst höfundurinn á við þau málefni samtímans sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Bókaflokkurinn hefur verið þýddur á 17 tungumál og selst í milljónum eintaka um allan heim.

Kristján H. Kristjánsson þýddi.

„Emma Sköld er lögreglukona sem maður vill lesa um aftur og aftur. Lygarinn er skuggalega góð.“ Femina Newspaper

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán