Heim › ...

Um bókina

Hversu vel þekkir þú barnið þitt?

Innbrotahrina gengur yfir í Bromma í Stokkhólmi þar sem þjófarnir ganga sífellt lengra. Þegar unglingspiltur finnst svo myrtur er lögreglufulltrúinn Emma Sköld sett í að rannsaka málið. Allt bendir til þess að innbrot hafi farið úr böndunum og í fyrstu beinast grunsemdir að húshjálp sem kom að hinum myrta í húsi fjölskyldu hans.

Á spjallsíðunni Vinum Bromma grassera fordómar og hatursfull orðræða um húshjálpina sem og aðra erlendra farandverkamenn sem starfa í hverfinu. Emma heldur sínu striki og stefnir bæði sjálfri sér og öðrum í hættu þegar hún tekur málin í eigin hendur.

Blóraböggullinn er sjálfstætt framhald af bókunum um Emmu Sköld og samstarfsfólk hennar. Æsispennandi saga um lygar, hefnd og brotnar fjölskyldur.

Á framhlið: Glæpasagnahöfundur áranna 2019, 2020 og 2022 í Svíþjóð

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán