
Um bókina
Lögreglumaðurinn Lance Hansen í Minnesota finnur illa útleikið lík við Lake Superior. Ungur norskur ferðamaður hefur verið myrtur á hroðalegan hátt og skilinn eftir í blóði sínu.
Lance finnur vísbendingar um að annað morð hafi verið framið á þessum sama stað röskum hundrað árum fyrr, á tímum vesturferðanna þegar forfeður hans flykktust til Minnesota ásamt fjölda annarra Norðurlandabúa í leit að landi draumanna.
Illur grunur læðist að Lance um morðið á norska ferðamanninum uns hann telur sig vita hver morðinginn er. En segi hann frá því mun tilvera hans og fjölskyldunnar allrar hrynja til grunna …
LAND DRAUMANNA er fyrsti hlutinn í Minnesota-þríleiknum og fékk bókin Rivertonverðlaunin sem besta glæpasaga ársins 2008. Hún var jafnframt tilnefnd til Glerlykilsins sem besta norræna glæpasagan.
.„Minnesota-þríleikurinn eftir Sundstøl er sannkölluð lestrarnautn, hlaðin spennu, glæsilega skrifuð og persónusköpun trúverðug ... Höfundurinn býður okkur í eftirminnilegt ferðalag.“ Verdens Gang ******
Kristín R. Thorlacius þýddi.
Minnesotaþríleikurinn
Bók 1 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


