Heim › ...

Um bókina

Lögreglumaðurinn Lance Hansen í Minnesota á í sálarstríði eftir að ungur norskur ferðamaður hefur verið myrtur á bökkum vatnsins mikla, Lake Superior.Lance er sannfærður um að saklaus maður sitji í fangelsi fyrir þennan skelfilega glæp og að Andy bróðir hans sé í raun morðinginn. Hann reynir að láta sem ekkert sé þegar þeir bræður fara saman á hjartarveiðar, eins og þeir eru vanir á haustin.Hversu langt mun Andy ganga þegar hann áttar sig á að Lance hefur hann grunaðan? Verður veiðimaðurinn kannski sjálfur bráð? Jafnframt leysist aldargömul morðgáta smám saman.

HINIR DAUÐU er önnur bókin í Minnesota-þríleiknum sem hófst með LANDI DRAUMANNA. Hér vefur höfundurinn æsilegan sagnavef um rannsókn á morði, norræna innflytjendur í Vesturheimi og afturgöngu töfralæknisins Swamper Caribou.

Kristín R. Thorlacius þýddi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán