
Um bókina
Lance Hansen grunar Andy bróður sinn um morð. Veiðiferð þeirra bræðra fær óvæntan endi og Lance fer í sjálfskipaða útlegð. Sú tilhugsun að saklaus maður verði dæmdur fyrir morðið nagar hann sífellt uns hann snýr aftur á heimaslóðir við Lake Superior. Þar rekst hann á Chrissy, bróðurdóttur sína, sem hefur sagt skilið við sakleysi æskunnar og berst við að ná tökum á lífi sínu. Smám saman raknar úr flækjunni uns úr henni greiðist í áhrifamiklum lokaþætti.
HRAFNARINIR er lokhluti Minnesotaþríleiksins.
„Minnesota-þríleikurinn eftir Sundstøl er sannkölluð lestrarnautn, hlaðin spennu, glæsilega skrifuð og persónusköpun trúverðug ... Höfundurinn býður okkur í eftirminnilegt ferðalag.“
Verdens Gang.
„Vidar Sundstøl og lesendur hans geta verið vel sáttir við Minnesota-þríleikinn. Þetta eru vel hugsaðar, áhugaverðar og spennandi bækur. Vel þess virði að lesa, en þá er um að gera að byrja á byrjuninni.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / MBL
Kristín R. Thorlacius þýddi.
Minnesotaþríleikurinn
Bók 3 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


