Heim › ...
Furðustrandir - Erlendur #14 eftir Arnaldur Indriðason - hljóðbók

Furðustrandir - Erlendur #14

0
Vaka-Helgafell
Bók 14 af 14 í Erlendur

Um bókina

Erlendur er á æskuslóðum sínum austanlands og fortíðin sækir á: atvik úr hans eigin lífi sem og önnur óleyst og óuppgerð mál. Fyrir mörgum áratugum urðu þarna skelfilegir atburðir þegar stór hópur breskra hermanna lenti í óveðri í fjöllunum. Sumir komust til byggða við illan leik, aðrir ekki.

En samtímis hvarf ung kona á sama stað og fannst aldrei. Saga hennar vekur forvitni Erlendar sem þyrstir ákaft í svör við gátum fortíðar. Furðustrandir er fjórtánda skáldsaga Arnaldar Indriðasonar og tvímælalaust ein þeirra bestu. Arnaldur er margverðlaunaður höfundur og gagnrýnendur skipa honum iðulega á bekk með fremstu spennusagnahöfundum heims. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála og víða komist í efstu sæti metsölulista.

Á Íslandi hafa viðtökurnar jafnan verið frábærar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán