Heim › ...
Kamp Knox - Erlendur #3 eftir Arnaldur Indriðason - hljóðbók

Kamp Knox - Erlendur #3

0
Vaka-Helgafell
Bók 3 af 14 í Erlendur

Um bókina

Kona rekst á illa farið lík í lóni sem myndast hefur við orkuver á Reykjanesi. Árið er 1979 og margt bendir til að hinn látni tengist herstöðinni á Miðnesheiði en þar hafa menn lítinn áhuga á samstarfi við íslensku lögregluna. Erlendur og Marion Briem freista þess að afla upplýsinga eftir krókaleiðum en Erlendur er þó að hálfu leyti með hugann við annað: Reykjavíkurstúlku sem hvarf sporlaust fyrir aldarfjórðungi. Kamp Knox er átjánda skáldsaga Arnaldar Indriðasonar. Erlendur er nýlega byrjaður í rannsóknarlögreglunni og starfar undir handarjaðri Marion Briem en gömul mál sem flestir hafa gleymt láta hann ekki í friði.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán