Heim › ...
Harðskafi eftir Arnaldur Indriðason - hljóðbók

Harðskafi

8 klst 42 mín
Vaka-Helgafell
Bók 11 af 14 í Erlendur

Um bókina

Á köldu haustkvöldi finnst kona hangandi í snöru í sumarbústað sínum á Þingvöllum. Fátt virðist á huldu um andlát hennar en þegar Erlendur fær í hendur upptöku af miðilsfundi sem konan fór á skömmu fyrir andlátið kviknar hjá honum þörf til að kynna sér sögu hennar og komast að því hvers vegna lífi hennar lauk svo sviplega og hörmulega. Um leið leita á hann gamlar og óleystar gátur um horfið fólk og draugar úr hans eigin fortíð.

Erlendur Sveinsson er einhver dáðasta sögupersóna íslenskra nútímabókmennta; hrjúft yfirborð hins sérlundaða lögreglumanns í bland við mannúðina undir niðri hefur heillað lesendur hér heima og erlendis mörg undanfarin ár.

Arnaldur hefur lengi verið langvinsælasti höfundur landsins og bækur hans hafa nú komið út í yfir þrjátíu löndum, víða náð inn á metsölulista og selst í milljónum eintaka.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán